LEIÐIN Á LEIKANA: Ragnheiður Ragnarsdóttir

Saffran kynnir: Leiðin á leikana -  Réttur RagnheiðarRétturinn hennar Ragnheiðar er mangó marineraður kjúklingur með kókos og makademíuhnetuhjúp, ávaxtachutney og shiraz salat. Rétturinn er fáanlegur á veitingastöðum Saffran út febrúar, en fyrir hvern seldan rétt leggur Saffran til 100 kr. í styrktarsjóð Ragnheiðar fyrir leið hennar á Ólympíuleikana.

“Ég fæ kolvetni úr grænmetinu og ávöxtunum, prótín úr kjúklingnum og bestu fáanlegu fituna úr makademíuhnetunum. Máltíð sem þessi heldur líkama og sál í góðu jafnvægi í fjóra klukkutíma og undirbýr mig fyrir komandi átök.”


Með því einu að panta réttinn getur þú sýnt Ragnheiði stuðning þinn, í undirbúning hennar að keppni fyrir Íslands hönd í London í sumar.

Skoðaðu leið Ragnheiðar á leikana á leidin.saffran.is

 

 

 

 

Saffran styrkir íslenska Ólympíufara

Veitingastaðurinn Saffran hefur gert styrktarsamning við íslenskt afreksfólk sem undirbýr sig nú fyrir Ólympíuleikana í London sumarið 2012. Samningurinn var kynntur á Saffran, Dalvegi 4, fimmtudaginn 26. janúar .Markmið okkar er að aðstoða metnaðarfullt íslenskt íþróttafólk við að afla fjár til að mæta kostnaði við vandaðan undirbúning og leggja okkar af mörkum til að þau nái sem allra bestum árangri. Þetta eru þau:

Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður
Kári Steinn Karlsson, hlaupari
Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona
Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona
Þorbjörg Ágústsdóttir, skylmingakona
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari

 

 

 

Frábærar viðtökur í Orlando

Fyrsti SAFFRAN staðurinn í Bandaríkjunum var opnaður í Orlando í ágúst.  Viðtökur hafa verið mjög góðar og íslendingar sem þekkja til SAFFRAN á Íslandi eru sammála um að maturinn er ekki síðri, staðurinn mjög flottur og þjónustan frábær. 

Orlando búar eru smám saman að taka við sér og heimsækja okkur.  Alveg eins og á Íslandi, þá koma þeir nánast undantekningalaust aftur og aftur þegar þeir eru komnir á bragðið!  Oft sést til fólks vera að taka myndir af réttunum, sem þykja glæsilega framreiddir, sérstaklega þegar haft er í huga að um er að ræða skyndibitastað eða “Fast Casual” eins og flokkurinn sem við erum í er kallaður.

Við höfum fengið frábæra dóma og fengum meira að segja FJÓRAR STJÖRNUR í okkar flokki frá einum helsta matargagnrýnanda í Orlando, Heather McPherson, sem starfar hjá stærsta dagblaðinu á svæðinu “The Orlando Sentinel”.  Fleiri blöð hafa skrifað mjög skemmtilegar greinar um okkur þ.á.m. MyCityEats magazine sem einnig valdi SAFFRAN “Best newcomer restaurant” aðeins 6 vikum eftir að við opnuðum! Lesa meira. 

 

Vetraropnunartími tekur gildi

Á veitingastöðum SAFFRAN í Glæsibæ og á Dalvegi er vetraropnunartími í gildi frá 1. október:

  • Sunnudaga – er opið kl. 12-21.
  • Mánudaga og þriðjudaga er opið kl. 11-21.
  • Miðvikudaga – laugardaga er opið kl. 11-22.

Á veitingastaðnum SAFFRAN EXPRESS á N1 í Ártúnsbrekkunni er vetraropnunartími í gildi frá 1. október:

  • Opið alla daga á SAFFRAN EXPRESS kl. 11-22.

Velkomin á nýja heimasíðu SAFFRAN

Við erum stollt af því að kynna nýja heimasíðu SAFFRAN.  Nú er hægt að sjá myndir af nánast öllum réttunum okkar á síðunni, bæði réttum á matseðli SAFFRAN veitingastaðanna og einnig á SAFFRAN EXPRESS matseðlinum.

Einnig höfum við bætt við nánari upplýsingum um staðsetningu staðanna til að auðvelda öllum að finna okkur og upplýsingar um Veisluþjónustuna eru auðvitað á sínum stað.

Upplýsingar um rétt og böku vikunnar og súpu dagsins verða framvegis aðgengilegar á Facebook síðu SAFFRAN.

SAFFRAN OPNAR Í ORLANDO

Í dag opnar SAFFRAN fyrsta veitingastað sinn erlendis.  Staðurinn er í Orlando á 1700 Sand Lake Road rétt hjá Florida Mall, sem margir íslendingar kannast vel við.

SAFFRAN Orlando er byggður í samræmi við staðina á Íslandi og ber útlitið það með sér.  Einnig má sjá greinilega íslenska tengingu á staðnum.

Sömu frábæru réttirnir eru í boði með smá tilbrigðum til að nýta sem mest hráefni úr nágrenninu.  Sjá nánari upplýsingar um SAFFRAN Orlando á www.saffran.us

 

 

 


SAFFRAN EXPRESS opnar

SAFFRAN hefur opnað þriðja staðinn á höfuðborgarsvæðinu: SAFFRAN EXPRESS á N1 í Ártúnsbrekkunni.  SAFFRAN EXPRESS er með aðeins öðru sniði en aðrir staðir SAFFRAN.  Áherslan, eins og nafnið gefur til kynna, er hröð þjónusta án þess þó að það komi niður á gæðum og ljúffengu bragði, þannig að SAFFRAN EXPRESS matseðillinn er einfaldari.

 

Samlokubakkar á fundinn

 

Veisluþjónustan í Fréttablaðinu

Smáréttir

“Veisla er ekki sama og sukk” er yfirskrift greinar í Fréttablaðinu fimmtudaginn 10. mars 2011 þar sem Haukur Víðisson, framkvæmdastjóri SAFFRAN, útskýrir hvernig hægt er að halda veislu með gómsætum, ferskum og hollum veitingum sem kitla bragðlaukana án þess að majones, rjómi, hvítt hveiti og hvítur sykur komi þar nálægt.  Nánari upplýsingar um veisluþjónustu SAFFRAN.

 

 

 


SAFFRAN TILNEFNT TIL FJÖREGGSINS

Matvæla-og næringarfræðafélag Íslands hefur veitt verðlaun fyrir lofsvert framtak á matvælasviði árlega frá árinu 1993 á Matvæladegi MNÍ.  Verðlaunagripurinn er íslenskt glerlistaverk sem táknar Fjöreggið og eru verðlaunin veitt með stuðningi frá Samtökum iðnaðarins.

Fjöreggið

MNÍ barst fjöldi ábendinga um verðuga verðlaunahafa.  Þeir fimm sem hlutu tilnefningu að þessu sinni eru:

  • Fjörostur
  • Lýsi hf.
  • Matvælaskólinn hjá Sýni
  • SAFFRAN veitingastaðir
  • Ólafur Reykdal fyrir rannsóknir á íslensku byggi

Það er mikill heiður fyrir SAFFRAN að vera í þessum góða hópi tilnefndra aðila og er það viðurkenning á framlagi SAFFRAN til eflingar heilsu fólks með því að bjóða hollan, gómsætan og ferskan skyndibita á hagstæðu verði.

Á myndinni má sjá fulltrúa þeirra sem hlutu tilnefningu ásamt dómurum.  Fjöreggið hlaut Ólafur Reykdal.

 

Hollt, ferskt og framandi

Við notum ekkert hvítt hveiti og engan hvítan sykur – bara hollt - og allar marineringar eru heimalagaðar beint frá hjartanu og eru án allra aukaefna og MSG.